Rúnar Már Sigurjónsson spilaði allan leikinn fyrir Grasshopper í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld.
Grasshopper fékk St. Gallen í heimsókn í kvöld og var Rúnar Már að vanda í byrjunarliðinu.
Fyrir leikinn sátu liðin í 6. og 7. sæti deildarinnar með 17 stig. Leikurinn varð skemmtilegur og endaði hann 2-2. Liðin eru því enn jöfn.
Bæði lið eru komin 6 stigum frá fallsæti.
Athugasemdir