Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. nóvember 2016 20:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Þýskaland: Bayern með mikilvægan sigur
Hummels skoraði sigurmark Bayern
Hummels skoraði sigurmark Bayern
Mynd: Getty Images
Bayern 2 - 1 Bayer
1-0 Thiago Alcantara ('30 )
1-1 Hakan Calhanoglu ('35 )
2-1 Mats Hummels ('56 )


Bayern Munchen tóku á móti Bayer Leverkusen í síðasta leik þýsku úrvalsdeildarinnar í dag. Bayern þurfti nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda í við spútniklið deildarinnar, Red Bull Leipzig.

Heimamenn í Bayern komust yfir með marki frá Thiago Alcantara á 30. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði hakan Calhanoglu fyrir Leverkusen.

Varnarjaxlinn Mats Hummels skoraði svo sigurmark Bayern á 56. mínútu og eru þýsku meistararnir þremur stigum á eftir RB Leipzig.

Leverkusen sitja í 9. sæti deildarinnar, 11 stigum á eftir Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner