Trent Alexander-Arnold skoraði sitt fyrsta mark á Anfield í kvöld þegar Liverpool sigraði Swansea 5-0.
Alexander-Arnold hefur skorað tvö mörk á útivelli fyrir Liverpool en honum tókst loksins að skora á Anfield í dag sem hann var skiljanlega virkilega ánægður með.
„Það er draumur að verða að veruleika að skora á Anfield, og sérstaklega gott að vinna líka."
„Ég hef skorað tvö mörk á útivelli en það er mjög ánægjulegt að skora loksins á Anfield," sagði Alexander-Arnold.
Mark Alexander-Arnold í dag var hans þriðja mark á tímabilinu, fyrsta markið kom gegn Hoffenheim í ágúst, annað markið kom svo gegn Maribor í október.
Athugasemdir