Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 26. desember 2017 16:40
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Swansea: Mane bekkjaður
Mynd: Getty Images
Sadio Mane og Adam Lallana byrja á bekknum er Liverpool tekur á móti botnliði Swansea.

Mohamed Salah, Roberto Firmino og Philippe Coutinho mynda sóknarlínu heimamanna á meðan hinn ungi Oliver McBurnie leiðir sóknarlínu gestanna, með Wayne Routledge og Jordan Ayew sér við hlið.

Alex Oxlade-Chamberlain byrjar á miðjunni hjá Liverpool ásamt Georginio Wijnaldum og Emre Can.

Liverpool getur komist yfir Tottenham og í fjórða sæti deildarinnar með sigri í dag á meðan Svanirnir þurfa sigur til að koma sér betur fyrir í fallbaráttunni.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Liverpool: Mignolet; Arnold, Matip, Klavan, Robertson - Can, Wijnaldum, Chamberlain; Salah, Firmino, Coutinho
Varamenn: Karius, Gomez, Lovren, Milner, Lallana, Mane, Solanke

Swansea: Fabianski; Naughton, Fernandez, Mawson, Olsson; Carroll, Mesa, Fer; Routledge, McBurnie, Ayew
Varamenn: Nordfeldt, van der Hoorn, Rangel, Dyer, Clucas, Sanches, Abraham
Athugasemdir
banner
banner
banner