Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 26. desember 2017 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Celtic samþykkti ekki tilboð í Dembele
Mynd: Getty Images
Sky Sports greindi frá því í gær að Celtic hafði samþykkt tilboð frá Brighton í framherjann unga Moussa Dembele.

Celtic segir ekkert til í þessum sögusögnum, sem hermdu að 18 milljón punda tilboð Brighton hafði verið samþykkt.

Fréttamenn eru sammála um að nýliðarnir þurfi að bæta félagsmet og punga út 25 milljónum til að krækja í Dembele.

Brighton setti félagsmet þegar félagið greiddi 16 milljónir fyrir Jose Izquierdo síðasta sumar.

Markareikningur Dembele talar fyrir hann. Hann er 21 árs og hefur gert 40 mörk í 67 leikjum fyrir Celtic. Þá hefur hann einnig gert 7 mörk í 10 U21 landsleikjum fyrir Frakkland.
Athugasemdir
banner
banner
banner