Sean Dyche viðurkenndi fúslega að sínir menn í Burnley hafi komið á Old Trafford til að verjast í dag.
Burnley komst tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en missti forystuna niður í síðari hálfleik, jöfnunarmarkið kom í uppbótartíma.
Burnley komst tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en missti forystuna niður í síðari hálfleik, jöfnunarmarkið kom í uppbótartíma.
„Ég er mjög stoltur af hópnum sem er undir gríðarlega miklu leikjaálagi. Við mættum hingað til að verjast og við stóðum okkur vel," sagði Dyche.
„Aukaspyrnan var mögnuð. Á öðrum degi hefði þessi spyrna unnið leikinn fyrir okkur, en við erum ánægðir með jafnteflið.
„Þeir eru með ógnvekjandi gæði og breidd í leikmannahópnum."
Athugasemdir