Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. desember 2017 18:29
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Man Utd og Burnley: Jóhann Berg maður leiksins
Jóhann Berg á Old Trafford í dag.
Jóhann Berg á Old Trafford í dag.
Mynd: Getty Images
Burnley heimsótti Manchester United á Old Trafford í dag þar sem niðurstaðan var 2-2 jafntefli.

Gestirnir í Burnley voru með 0-2 forystu í hálfleik en Jesse Lingard skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og bjargaði stigi fyrir heimamenn.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley í dag og hann átti stóran þátt í fyrra marki Burnley í leiknum.

Sky Sports valdi Jóhann Berg Guðmundsson sem mann leiksins en hann fékk átta í einkunn.

Hjá Manchester United fékk tveggja markamaðurinn Jesse Lingard sjö í einkunn en hann kom inn á í upphafi seinni hálfleiks, Ashley Young fékk einnig sjö.

Einkunnir Manchester United: De Gea (6), Young (7), Jones (6), Rojo (5), Shaw (6), Mata (6), Pogba (6), Matic (6), Rashford (6), Ibrahimovic (5), Lukaku (5).

Varamenn: Lingard (7), Mkhitaryan (6).

Einkunnir Burnley: Pope (6), Bardsley (7), Mee (7), Long (7), Taylor (6), Jóhann Berg Guðmundsson (8), Defour (7), Cork (6), Arfield (7), Hendrick (6), Barnes (7).

Varamenn: Vokes (6).

Maður leiksins: Jóhann Berg Guðmundsson.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner