Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. desember 2017 15:02
Ívan Guðjón Baldursson
Kane: Þarf að finna pláss fyrir alla þessa bolta
Mynd: Getty Images
Harry Kane er ánægður að það sé verið að bera hann saman við Alan Shearer og Lionel Messi.

Kane bætti markamet Shearer þegar hann skoraði þrennu gegn Southampton í dag. Þá er Kane búinn að skora meira en Lionel Messi og Cristiano Ronaldo á árinu.

„Þeir eru allir í geymslu í heima eins og er, ég þarf að finna pláss fyrir alla þessa bolta," sagði Kane eftir að hafa fengið enn einn bolta með sér heim fyrir að skora þrennu.

„Þetta hefur verið frábært ár. Að vera borinn saman við leikmenn á borð við Messi og Shearer er stórkostlegt. Það er frábært að enda árið með þrennu.

„Við erum vonsviknir með að hafa fengið tvö mörk á okkur en bjarta hliðin er auðvitað að við skoruðum fimm."

Athugasemdir
banner
banner
banner