Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. desember 2017 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Klopp: Síðasti hálftíminn var frábær
Mynd: Getty Images
Liverpool fór illa með Swansea í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld þegar þeir skoruðu fimm mörk gegn engu marki gestanna frá Wales.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool var gríðarlega sáttur með frammistöðu sinna manna.

„Eftir 55 mínútur leit þetta vel út en fyrir það var þetta mikil vinna, þetta var ekki auðvelt."

„Síðasti hálftíminn var frábær, og gaman að horfa á leikinn, við áttum sigurinn svo sannarlega skilið," sagði Jurgen Klopp.

Lallana snér aftur á völlinn í dag og Klopp var ánægður með endurkomu hans.

„Það er mjög gott að fá hann til baka, hann mun þurfa smá tíma til að koma sér aftur í sitt besta form. Við reyndum að gefa honum eins margar mínútur og við gátum í dag, við viljum hafa hann með okkur í öllum verkefnum."
Athugasemdir
banner
banner
banner