Jesse Lingard kom inn af bekknum er Manchester United var tveimur mörkum undir gegn Burnley í hálfleik í enska boltanum í dag.
Lingard brenndi af dauðafæri áður en hann minnkaði fyrst muninn með stórkostlegu hælmarki og jafnaði svo í uppbótartíma.
Lingard brenndi af dauðafæri áður en hann minnkaði fyrst muninn með stórkostlegu hælmarki og jafnaði svo í uppbótartíma.
„Það er svekkjandi að ná bara stigi þegar maður skapar svona mikið af færum. Við stjórnuðum leiknum frá upphafi og áttum að vinna," sagði Lingard að leikslokum.
„Mér líður mjög vel þessa dagana, það er frábært að geta hjálpað liðinu með því að skora.
„Við njótum þess að spila, við erum með stóran hóp og þurfum að spila mikið af leikjum. Það er mikilvægt að dreifa álaginu á milli leikmanna."
Athugasemdir