SportTv sýnir leik Stjörnunnar og ÍBV á Fótbolta.net mótinu í beinni útsendingu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:15 í Kórnum.
Um er að ræða síðasta leik riðlakeppninnar og er þetta hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitaleik mótsins þar sem mótherjinn verður Breiðablik.
SMELLTU HÉR til að horfa á leikinn í beinni
ÍBV dugir jafntefli til að komast í úrslitaleikinn en Stjarnan þarf sigur.
Magnús Valur Böðvarsson sér um að lýsa leiknum en Helgi Mikael Jónasson sér um dómgæsluna. Aðstoðardómarar eru Birkir Sigurðarson og Óli Njáll Ingólfsson.
Athugasemdir