Óttast er að Bojan Krkic sóknarmaður Stoke hafi slitið krossband í sigri liðsins á Rochdale í enska bikarnum í gær.
Bojan skoraði glæsilegt mark senmma leiks áður en hann meiddist illa á hné.
Bojan skoraði glæsilegt mark senmma leiks áður en hann meiddist illa á hné.
Samkvæmt fréttum frá Englandi er óttast að krossbandið sé slitið sem þýðir hálfs árs fjarvera.
Hinn 24 ára gamli Bojan skaust ungur fram á sjónarsviðið með Barcelona.
Eftir lægð undanfarin ár hefur Bojan sýnt flotta takta með Stoke á þessu tímabili.
Athugasemdir