Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. janúar 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Milan mætir Lazio í 8-liða úrslitum
Inzaghi verður líklega rekinn úr stjórastól Milan tapi liðið í kvöld.
Inzaghi verður líklega rekinn úr stjórastól Milan tapi liðið í kvöld.
Mynd: Getty Images
Milan tekur á móti Lazio í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins en liðin áttust við í ítölsku deildinni fyrir skömmu þar sem Lazio lék sér að andstæðingum sínum og vann öruggan 3-1 sigur.

Sigurvegari leiksins í kvöld mætir annað hvort Inter eða Napoli í undanúrslitum sem mun kynda undir leikmönnum Milan sem vilja erkifjendaslag til að bjarga hörmulegu tímabili.

Lazio hefur verið að gera góða hluti á tímabilinu og er í meistaradeildarbaráttu ásamt því að eiga góðan möguleika á að komast í undanúrslit bikarsins.

Leikur kvöldsins:
19:45 AC Milan - Lazio
Athugasemdir
banner
banner
banner