Roma og Dnipro eru í viðræðum um kaup þeirra fyrrnefndu á úkraínska landsliðsmanninum Yevhen Konoplyanka.
Þetta staðfesti Andrei Stetsenko, framkvæmdastjóri Dnipro, við heimasíðu félagsins. Konoplyanka var sterklega orðaður við Tottenham og Liverpool í janúar í fyrra en varð um kyrrt í Úkraínu, bæði þá og í sumar.

,,Dnipro og Roma eru í viðræðum um félagaskiptin á Konoplyanka," sagði Stetsenko við fcdnipro.com.
,,Félögin hafa nánast komist að samkomulagi, og strákurinn íhugar nú möguleikann á að skipta um lið. Félagið er tilbúið og leitar nú að staðgengli."
Athugasemdir