Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. janúar 2015 18:02
Magnús Már Einarsson
Meiðsli Bojan staðfest - Frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Bojan Krkic verður frá keppni út þetta tímabil eftir að hafa slitið krossband í 4-1 sigri Stoke á Rochdale í enska bikarnum í gær.

Hinn 24 ára gamli Bojan hafði komið Stoke yfir með glæsilegu skoti áður en hann meiddist í gær.

,,Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir félagið og ennþá meira fyrir Bojan," sagði Mark Hughes stjóri Stoke.

,,Hann var að setja mark sitt á ensku úrvalsdeildina og njóta þess að spila fótbolta."

Hinn 24 ára gamli Bojan skaust ungur fram á sjónarsviðið með Barcelona en eftir lægð undanfarin ár hefur hann sýnt flotta takta með Stoke á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner