Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. janúar 2015 16:11
Elvar Geir Magnússon
Ólafur Karl Finsen skemmtir sér í Noregi
Ólafur Karl Finsen.
Ólafur Karl Finsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Karl Finsen æfir þessa dagana með norska félaginu Haugesund og er í viðtali við heimasíðu félagsins.

Þar segist Ólafur ánægður með dvölina og segist hafa haft gaman að henni. Hann segir það ekki draum sinn að komast í atvinnumennsku, hann vilji hafa gaman og njóta þess að spila fótbolta.

Hann segist ánægður hjá Stjörnunni en hann hefði ekki farið til æfinga hjá Haugesund ef hann hefði ekki áhuga á að skoða hvað félagið hefur upp á að bjóða.

Ólafur Karl sló rækilega í gegn í Pepsi-deildinni í fyrra og átti stóran þátt í að Stjarnan tryggði sér sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Hjá Haugesund lýst mönnum vel á Ólaf en norskir fjölmiðlar tala um að hann sé hugsanlega of dýr fyrir félagið sem hafnaði í 11. sæti norsku úrvalsdeildarinnar í fyrra.

Athugasemdir
banner
banner