Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. janúar 2015 16:52
Elvar Geir Magnússon
Roma búið að kaupa Yanga-Mbiwa
Mapou Yanga-Mbiwa í leik með Roma.
Mapou Yanga-Mbiwa í leik með Roma.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Mapou Yanga-Mbiwa er nú formlega orðinn leikmaður Roma.

Hann var á láni hjá ítalska félaginu en eftir að hafa leikið sinn 20. leik opnaðist klásúla fyrir Roma að kaupa hann alfarið. Kaupverðið er 5,5 milljónir punda.

Newcastle hefur staðfest þetta í tilkynningu frá félaginu.

Yanga-Mbiwa er 25 ára miðvörður sem á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Frakkland en hann kom til Newcastle frá Montpellier 2013.
Athugasemdir
banner
banner