Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, býst við því að Lionel Messi verði á kantinum þegar Barcelona heimsækir Vicente Calderon á miðvikudag.
Messi hefur oft spilað fyrir aftan framherjana í holunni, en er jafnframt stundum notaður á köntunum, og þar finnst Simeone samlandi sinn eiga heima.
Messi hefur oft spilað fyrir aftan framherjana í holunni, en er jafnframt stundum notaður á köntunum, og þar finnst Simeone samlandi sinn eiga heima.
,,Barcelona vill ekki breyta sínum sögufræga leikstíl," sagði Simeone á blaðamannafundi.
,,Undanfarna leiki hafa þeir fært Messi á hægri kantinn og haft Luis Suarez fyrir miðju. Ef þeir vilja spila vel, þá þurfa þeir að hafa Messi á hægri kantinum. Ég held þeir muni gera það."
Athugasemdir