Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 27. janúar 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður: Balotelli er ánægður hjá Liverpool
Balotelli var ekki í hóp um síðustu helgi.
Balotelli var ekki í hóp um síðustu helgi.
Mynd: Getty Images
,,Já, hann er ánægður hjá Liverpool," sagði Mino Raiola, umboðsmaður Mario Balotelli, í viðtali hjá Sky í gær.

Balotelli var ekki í leikmannahópi Liverpool gegn Bolton um helgina en hann hefur valdið vonbrigðum síðan hann kom til félagsins síðastliðið sumar.

,,Enginn er ánægður með að vera ekki í hóp en hann tók þessu á fagmannlegan hátt," sagði Raiola sem segir samband Balotelli og Brendan Rodgers vera gott.

,,Þeir tala saman og eru í góðu sambandi. Mario kann vel við hann en þeir eru ekki sammála um allt."

,,Þeir eru ósammála um tæknilega hluti en Mario mun reyna að gera það sem stjórinn vill. Þessi félagaskipti komu á réttum tíma á ferli hans. Hann er ennþá einn sá besti í heimi."

Athugasemdir
banner
banner
banner