Upptaka af sjónvarpsþætti Fótbolta.net er nú komin á netið en þátturinn var á sínum stað klukkan 20:30 á fimmtudagskvöld á ÍNN.
Í þættinum á fimmtudag var farið yfir fréttir vikunnar. Jose Mourinho var til umfjöllunar en hann var afar ósáttur eftir jafntefli Chelsea og Burnley um síðustu helgi. Einnig var rætt um þá ákvörðun að hafa HM í Katar að vetri til.
Í síðari hluta þáttarins var farið yfir klisjur í viðtölum. Benedikt Bóas Hinriksson lék þjálfara sem kann allar klisjurnar í bókinni og rætt var um klisjur.
Adolf Ingi Erlingsson tók svo viðtal við Skúla Jón Friðgeirsson á sænsku í lok þáttarins. Sjón er sögu ríkari!
Þáttastjórnandi er Magnús Már Einarsson.
Gestir í fjórða þætti
Adolf Ingi Erlingsson - Útvarpsstjóri Radio Iceland
Benedikt Valsson - Hraðfréttir
Skúli Jón Friðgeirsson - KR
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá upptöku úr fyrsta þætti (5. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr öðrum þætti (12. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr þriðja þætti (19. febrúar)
Athugasemdir