Sepp Blatter, forseti FIFA, vill að úrslitaleikurinn á HM í Katar 2022 fari ekki fram síðar en 18. desember.
HM mun fara fram í nóvember og desember vegna hita á sumrin og rætt hefur verið um að hafa úrslitaleikinn 23. desember.
Blatter vill aftur á móti ekki sjá það gerast en búast má við að lokaákvörun liggi fyrir í næsta mánuði.

,,Við verðum að stoppa þann 18. desember," sagði Blatter.
Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar fagna því ef mótið klárast 18. desember þar sem þeir vilja hafa leiki í kringum jólahátíðina líkt og vanalega.
Athugasemdir