banner
   fös 27. febrúar 2015 10:13
Magnús Már Einarsson
Diego Costa: Mun ekki breyta leikstíl mínum
Ætlar að spila áfram eins.
Ætlar að spila áfram eins.
Mynd: Getty Images
Diego Costa segist ekki ætla að breyta leikstíl sínum þrátt fyrir leikbannið sem hann fékk fyrir að traðka á Emre Can á dögunum. Costa lætur finna vel fyrir sér í leikjum og hann ætlar að halda því áfram.

,,Ég ætla ekki að breyta því hvernig ég spila," sagði Costa sem vill meina að hann fái ekki sömu meðhöndlun hjá dómurum og aðrir.

,,Ég veit að ég þarf að passa mig aðeins betur því það er ekki eins þegar ég geri eitthvað og þegar einhver annar gerir eitthvað."

,,Það er talað mun meira um það sem ég geri en einhver annar leikmaður."

,,Ég þarf að passa mig sérstaklega en ég ætla aldrei að breyta leikstíl mínum. Hann kom mér þangað sem ég er í dag. Svona spila ég."

Athugasemdir
banner
banner