Breska blaðið Independent segir frá sjö staðreyndum um ISIS böðulinn Mohammed Emwazi sem síðan var þekktur undir nafninu 'Jihadi John'.
Emwazi ólst upp í London og var mikill fótboltaáhugamaður en hann var harður stuðningsmaður Manchester United samkvæmt blaðinu.
Emwazi ólst upp í London og var mikill fótboltaáhugamaður en hann var harður stuðningsmaður Manchester United samkvæmt blaðinu.
Hann átti sér þann draum í æsku að verða atvinnumaður í fótbolta og sparkaði í bolta í öllum frímínútum í skólanum.
Emwazi hefur hálshoggið vestræna gísla á áróðursmyndböndum Íslamska ríkisins en hann var nafngreindur í gær. Hann er 27 ára og er fæddur í Kúveit, ólst upp í London en ferðaðist til Sýrlands 2012. Fljótlega eftir það gekk hann í raðir íslamska ríkisins.
Independent greinir einnig frá því að hann hafi verið mikill aðdáandi Simpsons sjónvarpsþáttana og hljómsveitarinnar S Club 7.
Athugasemdir