Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. febrúar 2015 13:10
Elvar Geir Magnússon
Kynmökin á The Valley hluti af auglýsingaherferð
Mynd: Getty Images
Þá er það (Staðfest) að umtalað myndband af kynmökum á The Valley, heimavelli Charlton Athletic, var sviðsett.

Félagið sagði málið í rannsókn eftir að myndbandsbrot birtist á netinu af pari í góðum gír á miðjum vellinum.

Nú hefur myndbandið verið birt í heild sinni en um var að ræða hluta af auglýsingaherferð fyrir #HireTheValley.

Stuðningsmenn fá tækifæri til að nota völlinn fyrir grasrótarfótbolta í maí og geta þannig „skorað á vellinum" eins og parið í myndbandinu.

Hér má sjá auglýsinguna í heild sinni.


Athugasemdir
banner
banner