fös 27. febrúar 2015 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ramos og Jese flúðu frá fréttamönnum um miðja nótt
Mynd: Getty Images
Hér fyrir neðan má sjá stórskrítið myndband af því hvernig spænska pressan hegðar sér og neyðir leikmenn til að taka upp á alskyns brögðum til að forðast hana.

Spænskir knattspyrnufréttamenn virðast hafa lítið annað að gera en að elta stjörnurnar úr efstu deild spænska boltans hvert sem þær fara.

Í vikunni fagnaði Pepe afmæli sínu á veitingastað í borginni og auðvitað voru fréttamenn fyrir utan veitingastaðinn til að taka myndir af stjörnunum.

Klukkan var að verða 5 um morgun þegar síðustu leikmenn Real fóru af veitingastaðnum og má sjá skrautlegt myndband af því hér fyrir neðan, þar sem Jese Rodriguez og Sergio Ramos notuðu starfsmann veitingastaðarins sem truflun áður en þeir laumuðu sér út í bíl sem var fljótur að keyra af stað.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner