Njarðvík hefur fengið fimm nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar en fjórir af þeim koma frá Keflavík. Þrír af þeim voru einnig á láni hjá Njarðvík frá Keflavík síðastliðið sumar.
Þeir eru Bergþór Ingi Smárason en hann hefur leikið 10 leiki og skorað 2 mörk með Njarðvík, Magnús Þór Magnússon sem lék 13 leiki í 2. deildinni í fyrra og Viktor Smári Hafsteinsson sem lék einnig með Njarðvík sumarið 2013.
Þá hefur Njarðvík einnig fengið Óðinn Jóhannsson frá Keflavík en hann er á miðari í 2. flokki. Hann er bróðir Ómars Jóhannssonar aðstoðarþjálfara Njarðvíkur.
Að auki er Róbert Örn Ólafsson kominn til Njarðvíkur frá Víði þar sem hann hefur skorað 16 mörk í 71 leik á ferlinum.
Athugasemdir