Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 27. febrúar 2015 11:18
Elvar Geir Magnússon
Sóknarlína Liverpool fékk falleinkunn
Leikmenn Liverpool þurfa að rífa sig upp fyrir sunnudag þegar liðið mætir Manchester City í deildinni.
Leikmenn Liverpool þurfa að rífa sig upp fyrir sunnudag þegar liðið mætir Manchester City í deildinni.
Mynd: Getty Images
Liverpool féll úr leik í Evrópudeildinni í gær þegar liðið tapaði fyrir Besiktas 1-0 í Tyrklandi og fór leikurinn í vítaspyrnukeppni.

Þar klúðraði Dejan Lovren síðustu spyrnu keppninnar og Besiktas fagnaði sigri.

Margir hafa gert Lovren að blóraböggli eða kennt stjóranum um að hafa látið hann fara á punktinn meðan aðrir hafi bent á að sóknarmenn Liverpool hafi einfaldlega fallið á prófinu í leiknum í gær.

Hér að neðan má sjá hvaða einkunnir leikmenn Liverpool fengu á Goal.com:

Simon Mignolet 5
Kolo Toure 6
Dejan Lovren 5
Alberto Moreno 5
Martin Skrtel 6
Emre Can 6
Joe Allen 5
Raheem Sterling 5
Jordon Ibe 4
Daniel Sturridge 4
Mario Balotelli 4
(Manqillo 5, Lallana 5, Lambert 5)
Athugasemdir
banner
banner