Espanyol 1 - 0 Cordoba
1-0 Abraham Gonzalez ('43)
1-0 Abraham Gonzalez ('43)
Espanyol fékk botnlið Cordoba í heimsókn í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans.
Leikurinn var jafn frá upphafi til enda en eina mark leiksins skoraði Abraham Gonzalez rétt fyrir leikhlé.
Gestirnir verða eflaust svekktir með að fara heim stigalausir úr þessari viðureign þar sem þeir áttu 16 skot að marki.
Cordoba er fimm stigum frá öruggu sæti í deildinni á meðan Espanyol er í áttunda sæti, 12 stigum frá evrópudeildarsæti.
Athugasemdir