Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson héldu um stjórnartaumana í enska hringborðinu á X-inu FM 97,7 í dag þar sem hitað var upp fyrir Ofursunnudaginn. Hringborðið var tvöfalt að þessu sinni.
Gestir voru fjölmiðlamaðurinn Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og skólastjórinn Magnús Þór Jónsson, stuðningsmaður Liverpool.
Seinni hlutann má heyra í spilaranum hér að ofan en þar var hitað upp fyrir úrslitaleik enska deildabikarsins þar sem Manchester City og Liverpool eigast við á morgun.
Sjá einnig:
Fyrri hluti: Man Utd - Arsenal og meistarabaráttan
Athugasemdir