Lið Birkis Bjarnasonar Aston Villa skilaði 81 milljóna punda tapi á síðasta ári samkvæmt nýjustu tölum en félagið féll úr úrvalsdeildinni sama ár.
Félagið greindi frá tapinu í yfirlýsingu sinni án þess að gera þó almennilega grein fyrir því hvert peningarnir fóru. Velta félagsins fór úr 115 milljónum punda í 108 milljónir síðla árs 2015.
Villa féll úr ensku úrvalsdeildinni árið 2015 en Dr. Tony Xhia tók yfir félagið í júní sama ár og því er ekki hægt að tengja hann við tekjutapið og verður því fróðlegt að sjá fjárhagsstöðu félagsins þegar ársreikningar þess verða gerðir opinberir í lok þessa árs.
Athugasemdir