Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. febrúar 2017 22:14
Stefnir Stefánsson
Einkunnir Leicester og Liverpool: Vardy maður leiksins
Maður leiksins
Maður leiksins
Mynd: Getty Images
Leicester City sigraði Liverpool 3-1 á King Power vellinum í kvöld. Mikið hafði gengið á hjá félaginu síðastliðna viku en félagið lét knattspyrnustjóra sinn Claudio Ranieri fara. Sigurinn því gríðarlega mikilvægur þar sem að liðið sat í fallsæti fyrir leikinn.

Jamie Vardy skoraði tvívegis og Danny Drinkwater skoraði geggjað mark með skoti fyrir utan teig. Philippe Coutinho klóraði í bakkann fyrir gestina en þar við sat.

Vardy fékk níu í einkunn og var maður leiksins en Lucas Leiva og Roberto Firmino þurfa að sætta sig við fjarka.

Hér má sjá einkunnagjöf Goal.com:

Einkunnir Leicester: Schmeichel - 7, Simpson - 7, Fuchs - 7, Morgan - 6, Ndidi - 8, Huth - 8, Albrighton - 7, Drinkwater - 7, Okazaki - 6, Vardy - 9(Maður leiksins) , Mahrez - 6
(Varamenn: Chillwell - 6, Amartey - 6, Gray - 6)

Einkunnir Liverpool: Mignolet - 7, Matip - 6, Clyne - 6, Can - 5, Coutinho - 6, Lallana - 6, Wijnaldum - 6, Lucas - 4, Milner - 5, Firmino - 4, Mané - 5
(Varamenn: Moreno - 6, Origi - 5, Woodburn - 6)
Athugasemdir
banner
banner
banner