Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 27. febrúar 2017 22:00
Stefnir Stefánsson
England: Leicester City sigraði Liverpool
Vardy skoraði tvívegis í sterkum sigri
Vardy skoraði tvívegis í sterkum sigri
Mynd: Getty Images
Leicester City 3 - 1 Liverpool
1-0 Jamie Vardy ('28 )
2-0 Daniel Drinkwater ('39 )
3-0 Jamie Vardy ('60 )
3-1 Philippe Coutinho ('68 )

Leicester City vann frábæran sigur á sterku liði Liverpool þegar liðin áttust við á King Power vellinum í kvöld. Það var Jamie Vardy sem kom heimamönnum á bragðið með marki á 28. mínútu. Næstur að verki var Danny Drinkwater en hann skoraði með sturluðu skoti fyrir utan teig sem söng í netinu. 2-0 fyrir Leicester í hálfleik.

Vardy var síðan aftur að verki þegar hann skoraði af stuttu færi og staðan orðin 3-0 fyrir heimamenn.

Philippe Coutinho klóraði í bakkann á 68. mínútu með góðu skoti. Fleira var ekki skorað og lokatölur því 3-1 heimamönnum í vil sem þýðir að Leicester tekur því þrjú gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner