Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. febrúar 2017 22:37
Stefnir Stefánsson
Jurgen Klopp: Á erfitt með að lýsa vonbrigðum mínum
Jurgen Klopp var allt annað en sáttur
Jurgen Klopp var allt annað en sáttur
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp stjóri Liverpool var að vonum vonsvikinn eftir að lið hans tapaði 3-1 gegn Leicester City sem fyrir leik sat í botnsæti deildarinnar.

„Tungumálaörðugleikarnir koma í ljós þegar að þú tapar svona, ég á erfitt með að koma vonbrigðum mínum í orð."

„Það var ekki að Leicester voru of ákafir fyrir okkur, heldur tel ég frekar að við vorum ekki nógu fastir fyrir gegn þeim,"
sagði Klopp sem var mjög vonsvikinn.

„Þeir voru vel undirbúnir, þeir voru tilbúnir. Þeir áttu þessi föstu leikatriði og gerðu það vel. Við gáfum mörg innköst á okkur og það er þreytandi til lengdar sérstaklega þegar við vorum búnir að ræða að gera það ekki fyrir leik." hélt Klopp áfram.

„Fyrsta markinu er erfitt að kyngja og það augljóslega gaf þeim byr undir báða vængi."

„Ég ætti mjög erfitt með að tjá hversu vonsvikinn ég er á þýsku, en á ensku er það enþá erfiðara" sagði Klopp að lokum en með sigri gat hans lið farið upp í þriðja sæti deildarinnar en þeir sitja nú í 5. sætinu þremur stigum á eftir Manchester City og einu stigi á eftir Arsenal, en bæði þessi lið eiga leik til góða.

Athugasemdir
banner
banner
banner