banner
   mán 27. febrúar 2017 12:00
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið Leicester og Liverpool
Sturridge er veikur.
Sturridge er veikur.
Mynd: Getty Images
Leicester og Liverpool mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:00 í kvöld.

Liverpool verður líklega án Dejan Lovren sem er meiddur á hné. Lucas verður því væntanlega áfram í hjarta varnarinnar ásamt Joel Matip.

Daniel Sturridge fór heim úr æfingaferð Liverpool á La Manga um þarsíðustu helgi vegna veikinda. Sturridge hefur ekki ennþá náð sér og óvíst er hvort hann verði með.

Islam Slimani og Leonardo Ulloa eru tæpir hjá Leicester en aðstoðarstjórinn Craig Shakespeare stýrir liðinu í kvöld eftir brottrekstur Claudio Ranieri.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið að mati The Guardian.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner