Jeroen Zoet, markvörður PSV Eindhoven, færði Feyenoord sigurinn á ótrúlegan hátt í stórleik helgarinnar í hollenska boltanum.
Zoet hélt boltanum við jörðina eftir skalla og þrátt fyrir enga pressu þá tók hann boltann upp, dró hann að sér og yfir línuna.
Zoet hélt boltanum við jörðina eftir skalla og þrátt fyrir enga pressu þá tók hann boltann upp, dró hann að sér og yfir línuna.
Staðan var 1-1 á þessum tímapunkti en á Hollandi er notast við marklínutæknina. Dómarinn fékk upplýsingar um að knötturinn hefði farið yfir línuna og reyndist þetta sigurmark Feyenoord.
Zoet var gríðarlega ósáttur við ákvörðun dómarans en þú deilir ekki við marklínutæknina!
Feyenoord er með fimm stiga forystu á toppi hollensku deildarinnar en PSV er í þriðja sæti, núna ellefu stigum frá toppnum.
Athugasemdir