Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. febrúar 2017 17:30
Elvar Geir Magnússon
Nainggolan: Getum unnið alla
Nainggolan er vel flúraður.
Nainggolan er vel flúraður.
Mynd: Getty Images
Radja Nainggolan leikmaður Roma segir að liðið geti unnið hvaða lið sem er ef það spilar sinn bolta.

Roma vann 3-1 sigur á Inter í gær og er sjö stigum á eftir toppliði Juventus í ítölsku deildinni.

Roma er að berjast á þremur vígstöðvum, liðið er í undanúrslitum ítalska bikarsins þar sem það mætir erkifjendunum í Lazio og er einnig í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Nainggolan var stjarnan í stórleiknum gegn Inter þar sem hann skoraði tvívegis.

„Við erum að sanna það að við eigum skilið að vera þar sem við erum. Þegar við spilum okkar leik getum við unnið hvern sem er. Við unnum gott lið Inter og það verðskuldað," segir Nainggolan.

„Við erum að fara í gegnum erfiða leikjatörn en við þurfum að bæta okkur leik fyrir leik. Nú einbeitum við okkur að grannaslagnum sen er framundan. Það eru engin fagnaðarlæti strax."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner