banner
   mán 27. febrúar 2017 17:44
Elvar Geir Magnússon
Orri lék æfingaleik með Valerenga
Orri lék æfingaleik með Valerenga.
Orri lék æfingaleik með Valerenga.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Orri Sigurður Ómarsson, einn besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar, lék í dag æfingaleik með norska úrvalsdeildarliðinu Valerenga. Leikið var á Spáni gegn Shakhtyor Soligorsk frá Hvíta-Rússlandi.

Orri lék með frá byrjun og var í hjarta varnarinnar en hann er með félaginu til reynslu.

Orri, sem er fæddur 1995, hefur verið lykilmaður hjá Val síðustu tvö tímabil og bæði árin lyft bikarnum með liðinu.

Valerenga skoraði fyrsta markið í leiknum í dag en Hvít-Rússarnir svöruðu tvívegis.

Íþróttafréttamaðurinn Frode Marti segir á Twitter að fyrri hálfleikurinn hafi verið mjög öflugur af hálfu Valerenga en sá seinni hafi verið slakur. Þá segir hann að sigurmark leiksins hafi komið eftir mistök Orra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner