Craig Shakespeare, aðstoðarstjóri Leicester, var ráðinn tímabundið stjóri liðsins eftir að Claudio Ranieri var rekinn fyrir helgi.
Hinn 53 ára gamli Shakespeare verður við stjórnvölinn gegn Liverpool í kvöld.
BBC greinir frá því í dag að góðar líkur séu á því að Shakespeare stýri Leicester til lengri tíma.
Hinn 53 ára gamli Shakespeare verður við stjórnvölinn gegn Liverpool í kvöld.
BBC greinir frá því í dag að góðar líkur séu á því að Shakespeare stýri Leicester til lengri tíma.
Shakespeare er talinn líklegur til að fá starfið hjá Leicester að minnsta kosti út tímabilið.
Hann fær því að eiga við það verkefni að koma Leicester úr fallsæti en liðið fór þangað eftir úrslit í öðrum leikjum helgarinnar.
Athugasemdir