Óprúttnir stuðningsmenn Crystal Palace gerðu hrikaleg mistök þegar þeir spreyjuðu á liðsrútu Palace. Þeir héldu að um væri að ræða rútu andstæðingana í Middlesbrough.
Rútunni var lagt við hótel við leikvanginn og var spreyjað "Crystal Palace FC" stórum stöfum á aðra hliðina eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Rútunni var lagt við hótel við leikvanginn og var spreyjað "Crystal Palace FC" stórum stöfum á aðra hliðina eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Vallarstarfsmaður hjá Palace, Dean Waters, sagði á Twitter að kostnaðurinn við að laga eignarspjöllin væru í kringum 5 milljónir íslenskra króna.
Palace vann umræddan leik 1-0 og lyfti sér upp úr fallsæti.
Athugasemdir