Búast við því að Van Dijk geri nýjan samning - Arsenal vill Cunha - Akliouche meðal leikmanna á blaði City
   mið 27. mars 2013 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Lengjubikar kvenna: Stjarnan með góðan sigur á Breiðablik
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Breiðablik 1 - 4 Stjarnan
0-1 Danka Podavac ('12)
0-2 Rúna Sif Stefánsdóttir ('25)
0-3 Harpa Þorsteinsdóttir ('39)
1-3 Leikmaður óþekktur ('73)
1-4 Harpa Þorsteinsdóttir ('82)

Stjarnan lagði Breiðablik að velli þegar liðin mættust í A-deild Lengjubikars kvenna nú í kvöld. Eru liðin nú jöfn að stigum í 2. og 3. sæti deildarinnar.

Garðbæingar kláruðu leikinn strax í fyrri hálfleik þar sem staðan var orðin 3-0 á 39. mínútu.

Danka Podavac skoraði fyrsta mark leiksins áður en þær Rúna Sif Stefánsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir gerðu sitt markið hvor.

Breiðabliksstúlkur minnkuðu metin á 73. marki, áður en Harpa gerði sitt annað mark í leiknum 10 mínútum síðar.

Liðin er nú bæði með 9 stig í A-deildinni og hafa bæði spilað fjóra leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner