,,Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta verður hörkuleikur og það verður gaman að mæta Kasakstan á morgun," sagði Emil Hallfreðsson við Fótbolta.net í dag en hann verður í eldlínunni á morgun þegar Ísland mætir Kasakstan.
Kasakstan er í 138. sæti á heimslista FIFA en Emil segir að ekki megi vanmeta andstæðingana.
,,Ef við ætlum að fara að vanmeta einhverjar þjóðir þá erum við að gera eitthvað kolrangt. Við getum ekki gert það á móti neinum þjóðum."
Leikurinn á morgun fer fram innandyra á gervigrasi. ,,Við erum vanir þvi að spila í innanhúshöllum í gegnum tíðina og ég held að þetta hafi ekkert að segja. Þetta verður venjulegur fótboltaleikur á morgun á milli tveggja liða sem vilja bæði taka stig."
Emil er sáttur með að KSÍ hafi fengið kokk með frá Íslandi til að hjálpa til í Kasakstan.
,,Þeir eru alltaf að leita eftir að bæta sig. Þegar þeir bæta sig þá bætum við okkur líka. Þetta er allt jákvætt held ég," sagði Emil.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild.
Athugasemdir