„Ég er í toppformi sjálfur," segir Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Íslands, en tímabilið í Noregi er ekki hafið og því langt síðan hann lék mótsleik með Viking.
„Við höfum tekið marga æfingaleiki svo maður hefur spilað mikið. Leikformið ætti að vera í fínu lagi. Mér líður vel í kroppnum."
„Það eru toppaðstæður hérna í Kasakstan og það hefur verið séð vel um okkur."
Jón Daði hefur verið í byrjunarliði Íslands í öllum leikjum undankeppninnar hingað til. Er hann að fara að byrja á morgun?
„Ég hef ekki hugmynd. Það kemur bara í ljós. Það er komin meiri samkeppni og hún verður að vera til staðar. Hvort sem maður byrjar eða ekki þá er maður alltaf stoltur af því að vera hluti af þessum hóp," segir Jón Daði.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir