Markvörðurinn Marteinn Örn Halldórsson hefur gengið til liðs við ÍA en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Marteinn Örn hefur undanfarin tvö ár varið mark Reynis frá Sandgerði.
Marteinn Örn hefur undanfarin tvö ár varið mark Reynis frá Sandgerði.
Fyrr í vetur gekk hinn 24 ára gamli Marteinn til liðs við Fram en nú er ljóst að hann verður með skagamönnum í sumar.
Árni Snær Ólason er aðalmarkvörður ÍA en hinn reyndi Páll Gísli Jónsson hefur verið að glíma við meiðsli í vetur.
Marteinn er uppalinn hjá Fjölni en hann lék með Grafarvogsliðinu áður en hann fór í Reyni árið 2013.
Athugasemdir