fös 27. mars 2015 19:04
Brynjar Ingi Erluson
Sneijder: Ég mun fagna gegn Tyrkjum
Wesley Sneijder
Wesley Sneijder
Mynd: Getty Images
Wesley Sneijder, leikmaður Galatasaray- og hollenska landsliðsins, mun fagna gegn Tyrkjum er landsliðin mætast í undankeppni Evróumótsins á morgun.

Sneijder hefur undanfarin tvö ár leikið með Galatasaray í Tyrklandi en hann kom frá Internazionale.

Hollendingar þurfa á sigri að halda gegn Tyrkjum á morgun til þess að missa ekki af lestinni og mun hann fagna ef hann skorar gegn tyrkneska liðinu.

,,Ég mun fagna ef ég skora gegn Tyrkjum. Ég veit það samt ekki fyrir víst, við verðum bara að bíða og sjá hvernig leikur þetta verður," sagði Sneijder.

,,Ég býst við miklu frá stuðningsmönnum Tyrklands en ég býst við meiru af hollensku stuðningsmönnunum," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner