Það voru þrír leikir á dagskrá í B deild Lengjubikars kvenna í dag og er þeim nú lokið.
Grindavík rúllaði upp Selfossi á Selfossvelli, 0-6 en Lauren Brennan gerði fimm mörk fyrir Grindavík.
KR vann Keflavík, 2-1, í Egilshöllinni eftir að hafa lent undir. Anita Lind Daníelsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Keflavík strax á þriðju mínútu áður en Katrín Ómarsdóttir skoraði tvisvar af vítapunktinum í síðari hálfleik.
Fylkir vann ÍA stórt, 6-1, í Egilshöllinni en þetta var fyrsta tap ÍA á mótinu sem situr í efsta sæti B deildarinnar með 10 stig eftir fimm leiki.
Selfoss 0 - 6 Grindavík
0-1 Lauren Brennan ('10)
0-2 Lauren Brennan ('20)
0-3 Lauren Brennan ('45)
0-4 Carolina Mendes ('51)
0-5 Lauren Brennan ('69)
0-6 Lauren Brennan ('85)
KR 2 - 1 Keflavík
0-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('3)
1-1 Katrín Ómarsdóttir ('73)
2-1 Katrín Ómarsdóttir ('68)
Fylkir 6 - 1 ÍA
1-0 Markaskorara vantar ('15)
2-0 Markaskorara vantar ('44)
3-0 Markaskorara vantar ('45)
4-0 Markaskorara vantar ('65)
4-1 Markaskorara vantar ('78)
5-1 Markaskorara vantar ('85)
6-1 Markaskorara vantar ('87)
Athugasemdir