Nikola Kristinn Stojanovic, miðjumaður í 2. flokki Þórs, fer um helgina til serbneska félagsins Partizan Belgrad á reynslu.
Nikola, sem er fæddur árið 2000, mun æfa með unglingaliði Partizan í eina viku.
Nikola, sem er fæddur árið 2000, mun æfa með unglingaliði Partizan í eina viku.
Faðir Nikola er Dragan Stojanovic sem í dag þjálfar lið Fjarðabyggðar.
Dragan mun fara með Nikola til Belgrad og skoða starfið hjá Partizan.
Dragan er fyrrum leikmaður bæði Þórs og Fjarðabyggðar en hann hefur undanfarin ár þjálfað Þór, Þór/KA, Völsung og KF.
Athugasemdir