mán 27. mars 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Þessir þrír eru bestir í Championship
Dwight Gayle er tilnefndur.
Dwight Gayle er tilnefndur.
Mynd: Getty Images
Búið er að tilkynna þá þrjá leikmenn sem koma til greina í vali á leikmanni tímabilsins í ensku Championship deildinni.

Chris Wood framherji Leeds, Dwight Gayle framherji Newcastle og Anthony Knockaert kantmaður Brighton & Hove Albion koma til greina.

Woos hefur skorað 24 mörk á tímabilinu, Gayle hefur skorað 21 mark og Knockaert er með 13 mörk.

Valið verður tilkynnt við hátíðlegt tilefni í London sunnudagskvöldið 9. apríl.

Þar verða einnig veitt verðlaun í ensku fyrstu og annarri deildinni.

Hér að neðan má sjá allar tilnefningarnar.

Championship: Chris Wood (Leeds United), Dwight Gayle (Newcastle United), Anthony Knockaert (Brighton & Hove Albion).

1. deild: Billy Sharp og John Fleck (Sheffield United), Josh Morris (Scunthorpe).

2. deild: John Marquis og James Coppinger (Doncaster Rovers), Danny Hylton (Luton Town).
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner