Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. apríl 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Chicharito: Real Madrid er besta lið í heimi
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, framherji Real Madrid, segist vera að spila með besta liði í heimi.

Chicharito skoraði tvívegis gegn Celta Vigo í gær eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Þessi 26 ára gamli Mexíkói er í láni frá Manchester United en Real Madrid á möguleika á að kaupa hann í sumar.

Chicharito segist njóta á meðan er.

„Ég er leikmaður Madrid. Ég er ekki viss um að ég verði það lengi svo ég vil njóta hverrar einustu mínútu sem ég spila með besta liði í heimi," sagði Chicharito.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner