Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 27. apríl 2015 06:00
Brynjar Ingi Erluson
James: Hernandez á velgengnina skilið
Mynd: Getty Images
James Rodriguez, leikmaður Real Madrid á Spáni, er ánægður með Javier Hernandez, framherja liðsins.

Hernandez gerði tvö mörk í 4-2 sigri á Celta Vigo í gær en James og Toni Kroos skoruðu hin mörkin.

Hernandez hefur verið að spila vel í undanförnum tveimur leikjum en hann tryggði liðinu í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku og er James afar ánægður með kappann sem er á láni frá Manchester United.

„Chicharito er að gera góða hluti. Hann æfir mjög vel og ég er ánægður fyrir hans hönd," sagði James.

„Hann á þessa velgengni skilið því hann hefur verið mjög þolinmóður," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner