banner
   mán 27. apríl 2015 09:45
Magnús Már Einarsson
KR-ingar bjóða upp treyjur frá Messi, Suarez og Neymar
Treyjurnar sem verða á uppboðinu.
Treyjurnar sem verða á uppboðinu.
Mynd: KR
KR-ingar halda herrakvöld sitt á fimmtudagskvöld í Súlnasal Hótel Sögu en þar fer fram magnað uppboð á fótboltatreyjum.

MSN sóknarlína Barcelona verður á uppboði en gestir á herrakvöldinu geta boðið í áritaðar treyjur frá Messi, Suarez og Neymar.

„Gonzalo Balbi fékk mág sinn og hinn dagsfarsprúða Luis Suarez til að redda árituðum treyjum af hinni „heilagri þrennu“. Treyjurnar sendi hann svo með tengdaforeldrum sínum til Campoamor þar sem strákarnir voru í æfingaferð," sagði Kristinn Kjærnested formaður KR í samtali við Fótbolta.net í dag.

Sólmundur Hólm er veislustjóri og Ögmundur Jónasson ræðumaður kvöldsins en ljóst er að barist verður um treyjurnar á uppboðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner